05.08.2015 - 11:53 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason
		
	Glímt við gátuna
Síðasti dagur til þess að skila verðlaunakrossgátu vegna 80 ára minningar Hafliða Magnússonar er í dag, miðvikudaginn 5. ágúst 2015.
Krossgátan var í Sunnlenska fréttablaðinu þann 16. júlí s.l.  á 80 ára afmælisdegi Hafliða en hann lést þann 25. júní 2011.
 
Skila skal krossgátunni á skrifstofu Sunnlenska fréttablaðsins að Austurvegi 6 á Selfoss. Verðlaun eru til fimm þátttakenda og gefin af Vestfirska forlaginu á Þingeyri og eru tvær af bókum Hafliða Magnússonar.
 
Hér er verðlaunakrossgátan - gjörið svo vel !
Sjá meðfylgjandi mynd:


 
		 
		 
		
















