Gísli og Grettir á Lamb inn
Menningarviðburður verður í leikhúsinu fyrir norðan. Nánar tiltekið í Gamla bænum Öngulstöðum í Eyjafirði 18. og 19. september 2015.
Sýndir verða tveir kraftmiklir og sögulegir einleikir Kómedíuleikhússins. Gísli Súrsson hefur leik og svo tekur hinn útlaginn Grettir Ásmundarson við. Sýningarnar verða í hinu einstaka Gamla bæ á Öngulstöðum hjá ferðaþjónustubóndanum Lamb inn.
Einnig má geta þess að Marsibil G. Kristjánsdóttir verður með sína vinsælu myndlistarsýningu um Gísla sögu Súrssonar á sama tíma. Sú sýning verður á vinnustofunni á Lamb inn.
Sýningarnar verða föstudaginn 18. og laugardaginn 19. september. Hægt er að kaupa miða á báðar sýningarnar eða bara aðra þeirra. Þú velur. Miðaverð á staka sýningu er 2.500.- kr. Á báðar sýningarnar er miðaverðið aðeins 4.500.- Svo getur þú fullkomnað kveldið með matarveislu áður en sýningar hefjast.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu Lamb inn
www.lambinn.is