A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
05.10.2016 - 07:11 | Vestfirska forlagið,Komedia

Gísli á Uppsölum - Aukasýning á Þingeyri

Elfgar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.
Elfgar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.

Á nýlokinni helgi var leikritið Gísli á Uppsölum sýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri og var vel setið. Því hefur verið skellt á aukasýningu á Þingeyri. Sýnt verður fimmtudaginn 6. október 2016 kl.20.

Miðasala er þegar hafin og fer fram á netinu. Það er auðvelt að tryggja sér miða bara vippa sér inná heimabankann og ganga frá greiðslunni.

Reikningur: 0156 26 64

Kennitala: 640401 2650

Miðaverð: 3.500.- kr

 

Einnig er hægt að panta miða í síma: 891 7025 en elskurnar takið eftir við erum EKKI MEÐ POSA. 

 

Leikritið um Gísla á Uppsölum hefur fengið góða dóma hjá áhorfendum einsog lesa má hér:

 

,,Mæli svo með þessari sýningu. Þingeyringar og nærsveitungar, látið ekki Gísla á Uppsölum hlaupa frá ykkur."
,,Stórkostlegt einu orði sagt!"
,,Þessi sýning kom við allan tilfinningaskalann."
,,Mæli hiklaust með sýningunni sem er allt frá því að vera afar sorgleg upp í bráðskemmtileg."

 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30