01.07.2009 - 10:17 | bb.is
Gerir við skriðdreka og fiðlur
Ný viðgerðarþjónusta hefur opnað á Þingeyri en hún sérhæfir sig í viðgerðum á skriðdrekum og fiðlum. Skúli Elíasson, sjómaður frá Þingeyri, segist gera við drekana og strengjahljóðfærið en hann er sem stendur úti á sjó og verður ekki í landi fyrr en 10. júlí. Hvað íslenskir skriðdrekaeigendur gera í millitíðinni er óvíst og ekki líklegt að þeir leggi upp í hringferð um landið á fararskjótunum fyrst að eini skriðdrekavirkinn er úti á sjó, en ekki er ólíklegt að djarfir fjárfestar hafi fest kaup á einum dreka eða svo árið 2007. Íslenskir fiðlusnillingar verða einnig að bíða fram á 10. júlí, vilji þeir fá dýrfirskt handbragð á fiðluna sína.
Skúli gerir einnig upp gömul skip og báta og hann hefur áður sagst tilbúinn til verka vanti þjóðminjasafninu aðstoð við að gera báta í eigu safnsins upp. Á þriðja tug báta eru í eigu Þjóðminjasafnsins, ýmist í geymslu eða í viðgerða.