A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
20.05.2017 - 13:36 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Vestfirska forlagið

Frétt 20. maí 2016 - Stutt göng efst á Dynjandisheiði til skoðunar

Hugmynd um gömg á Dynjandisheiði.
Hugmynd um gömg á Dynjandisheiði.
Vegagerðin hefur nú til skoðunar að grafa stutt jarðgöng í gegnum efsta hluta Dynjandisheiðar til að taka af snjóþyngsta kaflann. Að öðru leyti yrði framtíðarveglína Vestfjarðavegar yfir heiðina að mestu óbreytt. 
Í síðustu viku auglýsti Vegagerðin forval vegna Dýrafjarðarganga og áformað að hefja framkvæmdir á næsta ári. Samhliða gerð Dýrafjarðarganga verður farið vegagerð á Dynjandisheiði. 

Vegurinn um Dynjandisheiði er 32 kílómetra langur, allur ómalbikaður og liggur hæst í 525 metra hæð. Í frétt Stöðvar 2 er haft eftir Kristjáni Kristjánssyni, forstöðumanns hönnunarsviðs Vegagerðarinnar, að nýr vegur fylgi að mestu sömu veglínu og sá gamli. 

Þó er nú til skoðunar að gera stutt jarðgöng efst á heiðinni norður af gatnamótum Bíldudalsvegar, vestan Lónfells. Göngin yrðu 1,3 til 2,3 kílómetrar að lengd og myndu liggja í um fjögurhundruð metra hæð en tækju af snjóþyngsta og erfiðasta kaflann. 


Fétt frá 20. maí 2016.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31