Framvinda Dýrafjarðarganga
Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í vikum 35-36 við vinnu Dýrafjarðarganga.
Vinna hélt áfram við lagningu frárennslis- dren- og ídráttarlagna ásamt brunnum í hægri vegöxl á leggnum frá munna ganganna í Dýrafirði og að hábungu og á nú eftir að leggja lagnir á um 1000 m kafla.
Sem fyrr var unnið við uppsetningu á einangrunarklæðingu til vatnsvarna í göngunum ásamt því að byrjað var að sprautusteypa yfir klæðingarnar.
Fyrsta steypufæran í yfirbyggingu vegskálans í Arnarfirði var steypt. Þak var einnig steypt í einu tæknirými og gólfplata í öðru. Byrjað var að fylla að vegskálanum í Dýrafirði.
Í Dýrafirði var klárað að leggja neðra burðarlag í veginn á rúmlega 1 km löngum kafla og unnið við frágang á fláum. Sem fyrr var efnisvinnsla í fullum gangi í Arnarfirði og er verið að framleiða efni sem fer í veginn í göngunum.
Búið er að fjarlægja efni undan brúnni yfir Mjólká og er áin nú farin að renna undir brúna. Unnið var við uppslátt á brúargólfi á brúnni yfir Hófsá.
Á meðfylgjandi myndum má sjá vegskálann í Dýrafirði, munnan í Arnarfirði, fleygvinnu við eitt af tæknirýmunum í gögnunum, uppsetningu á bendineti yfir einangrunarklæðingu og brúna yfir Mjólká.