03.10.2016 - 08:10 | bb.is,Vestfirska forlagið
Forsetahjónin til Vesturbyggðar í dag
Forsetahjónin, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, halda í opinbera heimsókn til Vesturbyggðar í dag en heimsóknin varir í tvo daga. Þetta segir í tilkynningu frá skrifstofu forseta. Þau hefja leika í fundarsal bæjarskrifstofu Vesturbyggðar á Patreksfirði og leggja svo leið sína í fyrirtæki og stofnanir á svæðinu. Að kvöldi mánudagsins verður svo haldin fjölskylduhátíð í Félagsheimilinu á Patreksfirði en þangað eru allir velkomnir.
Guðni og Eliza halda svo á morgun meðal annars í hið nýja Surtarbrandssafn á Brjánslæk þar sem Hákon Ásgeirsson landvörður tekur á móti þeim. Því næst kynna Jóhann Pétur Ágústsson bóndi og Halldóra Ragnarsdóttir á Brjánslæk forsetahjónum búskap sinn á Brjánslæk en opinberri heimsókn þeirra lýkur á Vaðli á Barðaströnd þar sem tekið verður hús á þeim Hákoni Jónssyni og Þórunni Eggertsdóttur.