A A A
  • 1955 - Barbara Woicik
  • 1966 - Nongnut Khaosamruang
  • 1967 - Steinn Ólafsson
21.03.2016 - 13:19 | skutull.is,Vestfirska forlagið

Fögnuður á frumsýningu Kardemommubæjarins á Þingeyri

Kardimommubærinn var frumsýndur á Þingeyri á laugardaginn fyrir fullu húsi við mikinn fögnuð áheyrenda og áhorfenda í Félagsheimilinu á Þingeyri. Kardemommubærinn er mjög viðamikil sýning. Fram koma um tveir tugir leikara auk allra þeirra sem vinna við sýninguna að tjaldabaki.

Leikstjóri er Elfar Logi Hannesson. Leikfélag Höfrungs á Þingeyri hefur síðustu ár sýnt leikverk eða söngleik fyrir börn og fullorðna á hverju ári. Sýningarnar hafa verið með miklum glæsibrag. Hér bæta Dýrfirðingar enn einni fjöður í sinn listamannahatt.

Næstu sýningar á Kardemommubænum verða um páskana, á föstudaginn langa klukkan 13 og 17 og á laugardaginn fyrir páska klukkan 13.

Miðasala er í síma: 864 2974.
 
« Ágúst »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31