01.01.2009 - 02:10 | JÓH
Fjör á jólaballi
Mikil gleði og mikið fjör var á jólaballi Höfrungs í Félagsheimilinu þann 28. desember sl. Fjölmargt fólk á öllum aldri mætti í sínu fínasta pússi til að syngja og dansa í kringum jólatréð. Boðið var upp á heitt súkkulaði, sem löngu er orðið landsfrægt, og Baggabandið spilaði fyrir ballgesti. Þá var sérstalega tekið eftir því hvað börnin voru dugleg að syngja með. Hurðaskellir, Kertasníkir og Stúfur kíktu í heimsókn og dönsuðu í kringum jólatréð með krökkunum og gáfu þeim gjafir áður en þeir héldu aftur til fjalla.
Davíð Davíðsson tók myndir á jólaballinu og eru þær komnar inn á myndasíðu Þingeyrarvefsins.