03.12.2015 - 06:50 | Komedia,BIB
Fjalla-Eyvindur snýr aftur - Selfoss 4. des. 2015
Hin útlæga og vinsæla sýning Fjalla-Eyvindur verður tekin úr útlegð á föstudag, 4.desember 2015. Þá verður þessi óvænt vinsæli leikur sýndur að nýju í Gamla bankanum á Selfossi. Á undan sýningunni mun Guðmundur G. Þórarinsson segja frá sinni sýn á lífshlaupi Fjalla-Eyvindar.
Miðaverð er aðeins 2.800.- kr og er miðasala þegar hafin í síma 894 1275. Fjalla-Eyvindar stundin á föstudag hefst kl.20.
Einleikurinn Fjalla-Eyvindur eftir og með Elfari Loga Hannessyni, tengdasyni Dyrafjarðar, hefur fengið fanta fínar viðtökur. Leikurinn var frumsýndur í lok október 2013 og hefur gengið síðan. Sýningar á leiknum hafa legið niðri um tíma en nú snýr Fjalla-Eyvindur aftur og hefur sjaldan verið hressari.