A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
08.11.2013 - 16:00 | Tilkynning

Fjalla-Eyvindur á Þingeyri

Leikritið verður sýnt í Simbahöllinni.
Leikritið verður sýnt í Simbahöllinni.

Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið Fjalla-Eyvindur á Þingeyri núna á laugardag 9. nóvember. Sýnt verður í hinu frábæra kaffihúsi Simbahöllin. Kaffihúsið opnar kl.15 á laugardag þar sem boðið verður uppá gómsætar kökur og viðeigandi drykki með bæði heita og kalda. Leiksýningin hefst síðan klukkutíma síðar eða kl.16. Miðaverð á leiksýninguna er aðeins 2.500.- kr. Grunn- og menntaskólanemar fá miðann á sérstöku tilboðsverði aðeins 1.000.- kr. Miðasölusími er hinn sami og áður 891 7025. Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn.

Leikritið Fjalla-Eyvindur hefur fengið afbragðs góðar viðtökur en leikurinn var frumsýndur á hátíðinni Veturnætur á Ísafirði fyrir skömmu. Enda er hér á ferðinni einstök saga um einn þekktasta útilegumann allra tíma Fjalla-Eyvind og hans konu Höllu frá Hrafnsfjarðareyri. Þó sagan sé dramatísk og all svakalega á köflum þá er hér um gamanleik að ræða. Enda er nú grínið einmitt sterkast í dramatíkinni.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31