Ferðamennskan á Þingeyri: - Allir komnir á fullan skrið í þjónustunni!
Nú er allt komið í „full sving“ í ferðamennskunni á Þingeyri. Það eru eiginlega ótrúlega margir sem koma þar við sögu.
Þeir helstu eru þessir:
Handverkshópurinn Koltra og Upplýsingamiðstöð ferðamála.
Vélsmiðja Guðmundar J. Sigurðssonar og co hf. elsta starfandi vélsmiðja landsins til sýnis
Simbahöllin eða Sigmundarbúð. Veitingar, útreiðar, hjólaleiga og samkomur og verkstæði listamanna alls staðar að.
Gistihúsið Við fjörðinn. Morgunverður og grillveislur. Hópferðabílar ehf. Litlir og stórir hópar.
Hljóðfærasafn Jóns Sigurðssonar.
Hótel Sandafel. Almenn hótelþjónusta.
Gistihúsið Vera og Gistihúsið Fjarðargötu 10.
Tjaldsvæðið og Íþróttamiðstöðin.
Víkingar á Vestfjörðum. Víkingahringur, langeldur, leiksvið, dansgólf og leiksvæði fyrir börn. Borð og bekkir fyrir rúmlega 400 manns.
Svo er auðvitað sjoppan hjá henni Diddu, sem kemur heldur betur við sögu hjá mörgum ferðalöngum. Einnig margir einstaklingar með alls konar þjónustu. Utan Þingeyrar eru meðal annars golfvöllurinn í Meðaldal og Gísli Súrsson í Haukadal.
Myndinar tók Björn Ingi Bjarnason.