13.09.2016 - 07:18 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið
Ferðamennskan: - Við verðum að stjórna traffíkinni!
Augu margra eru nú að opnast fyrir hinum vestfirsku tillögum um Íslandsgjaldið. Ef við ætlum að hafa eitthvert kontról á ferðamönnunum, verðum við að láta þá greiða aðgangseyri að náttúrulistasalnum Íslandi. Svo einfalt er það. Verður öllum til góðs, ekki síst ferðamönnunum sjálfum. Við verðum að stjórna traffíkinni. Verðum að stýra aðgenginu. Alveg eins og til dæmis dyravörðurinn í bíóhúsinu. Ef hann hleypir öllum stjórnlaust inn, verður bara kaos.