A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
01.09.2016 - 11:55 | Vestfirska forlagið,Verkalýðsfélag Vestfirðinga,bb.is

Fengið nóg af óheiðarleika, gleymsku og fullkomnu siðrofi

Trúnaðarráðið segir að óheft markaðslögmál hafi leikið of lausum hala allt of lengi í íslensku viðskiptalífi, með tilheyrandi spillingu.
Trúnaðarráðið segir að óheft markaðslögmál hafi leikið of lausum hala allt of lengi í íslensku viðskiptalífi, með tilheyrandi spillingu.
Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Vestfirðinga samþykkti á fundi síðdegis í gær ályktun um græðgi, ofurbónusa, sérhagsmunahópa og algjört siðrof í íslensku viðskiptalífi.
„Því miður kemur það aftur og enn í ljós að við búum í samfélagi þar sem tryggt er að þeir ríku verði ríkari og fátæku fátækari. Siðrof gagnvart almenningi er staðreynd og áhersla er áfram lögð á að styrkja stöðu sérhagsmunahópa og fjármagnseigenda og koma þeim að kjötkötlunum að nýju. Að þessu er unnið og það án leyndar,“ segir í ályktuninni. 


Trúnaðarráð segir skýrasta dæmið um „viðvarandi siðleysi og græðgi, vera ofurbónusa innan bankakerfisins. Þar kristallist græðgissjónarmiðin í ákvörðunum „fámennrar klíku sem skammtar sér hundruð milljóna í kaupauka á einu bretti. 

Trúnaðarráðið segir að óheft markaðslögmál hafi leikið of lausum hala allt of lengi í íslensku viðskiptalífi, með tilheyrandi spillingu. 

„Með hrópandi þögn sinni gefa stjórnvöld samþykki fyrir ósómanum. Trúnaðarráð Verk Vest er orðið langþreytt á misskiptingu og svikum gagnvart launafólki. Félagsmenn okkar eru langþreyttir á að vinna myrkrana á milli en eignast samt aldrei neitt. Trúnaðarráð Verk Vest hefur fengið nóg af óheiðarleika, gleymsku og fullkomnu siðrofi í íslensku samfélagi og krefst þess að strax verði bundinn endi á óhefta græðgisvæðingu sérhagsmunagæðinga samfélagsins.“ 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30