A A A
09.02.2016 - 09:04 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Fækkun sóknarbarna

Séra Baldur Vilhelmsson. Teikning.: Ómar Smári Kristinsson.
Séra Baldur Vilhelmsson. Teikning.: Ómar Smári Kristinsson.

Þótt séra Baldur sé farinn á aðrar og betri lendur, mun orðstír hans hérna megin grafar lengi lifa.  Gott dæmi um það er Austfirðingurinn  sem nýlega pantaði bækur hjá forlaginu á hjara veraldar. Átti hann langt tal við forlagsstjórann  um Vatnsfjarðarklerkinn. Mikill aðdáandi hans eins og fleiri.

    Austfirðingurinn sagðist hafa hitt séra Baldur fyrir nokkrum árum í góðu tómi í Vatnsfirði. Í samtali þeirra kom vel fram sá háttur síra Baldurs að tala í öfugmælum, þvert um hug sér.  Sá austfirski tók svo til orða:

    „Er nú ekki farið að fækka heldur í þínum sóknum þessi árin, Baldur minn?“

   „Jú, sem betur fer góði,“ svaraði klerkur þeirra Djúpmanna.

« September »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30