A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
10.07.2016 - 16:55 | Vestfirska forlagið,Emil Ragnar Hjartarson,Bændablaðið

FIMMTUDAGAR - BÆNDABLAÐIÐ

Úr síðasta Bændablaði.
Úr síðasta Bændablaði.
« 1 af 2 »

Fimmtudagar eru góðir dagar, þá er hægt að kippa með sér BÆNDABLAÐINU að loknum innkaupum í mörgum verzlunum. Bændablaðið birtir margt einkar áhugavert úr lífinu í sveitinni.

Þar er ekki barlómurinn, þar er engum ógnað, þar eru greinahöfundar jákvæðir--þar er bjartsýni ríkjandi eins og bændum er tamt og þeim hefur verið nauðsynlegt í slagnum við mislynda náttúru-- Bændablaðinu er ekkert óviðkomandi.

Í nýjasta tölublaðinu er falleg mynd af önfirskum heyskaparvelli með hinn fagra fjallahring fjarðarins sem leiktjöld í baksýn.  

Þar eru líka hollráð og leiðbeiningar til þeirra sem sinna og hafa gott af ferðamönnum, meira að segja í bundnu máli:

" Umfram allt skulum að engu flana
einkum í minni hafa ber
vandlega plokka af þeim peningana
og passa að þeir skíti ekki hvar sem er " !!!

----er þetta ekki það öllu máli skiptir, bundið í ferskeytlu ???

 

Af Facebook-síðu Emils R. Hjartarrsonar

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30