FIMMTUDAGAR - BÆNDABLAÐIÐ
Fimmtudagar eru góðir dagar, þá er hægt að kippa með sér BÆNDABLAÐINU að loknum innkaupum í mörgum verzlunum. Bændablaðið birtir margt einkar áhugavert úr lífinu í sveitinni.
Þar er ekki barlómurinn, þar er engum ógnað, þar eru greinahöfundar jákvæðir--þar er bjartsýni ríkjandi eins og bændum er tamt og þeim hefur verið nauðsynlegt í slagnum við mislynda náttúru-- Bændablaðinu er ekkert óviðkomandi.
Í nýjasta tölublaðinu er falleg mynd af önfirskum heyskaparvelli með hinn fagra fjallahring fjarðarins sem leiktjöld í baksýn.
Þar eru líka hollráð og leiðbeiningar til þeirra sem sinna og hafa gott af ferðamönnum, meira að segja í bundnu máli:
" Umfram allt skulum að engu flana
einkum í minni hafa ber
vandlega plokka af þeim peningana
og passa að þeir skíti ekki hvar sem er " !!!
----er þetta ekki það öllu máli skiptir, bundið í ferskeytlu ???
Af Facebook-síðu Emils R. Hjartarrsonar