A A A
  • 1986 - varð kjarnorkuslysið í Tsjernóbyl
17.02.2017 - 20:22 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

Eyrarrósin á Eistnaflug

Viðurkenning. - Forsvarsmenn þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs tóku við Eyrarrósinni við hátíðlega athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri í gær. Eyrarrósinni fylgir fjárstyrkur upp á tvær milljónir króna sem kemur sér vel.
Viðurkenning. - Forsvarsmenn þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs tóku við Eyrarrósinni við hátíðlega athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri í gær. Eyrarrósinni fylgir fjárstyrkur upp á tvær milljónir króna sem kemur sér vel.

Þungarokkshátíðin Eistnaflug handhafi Eyrarrósarinnar. 
Alþýðuhúsið og Vesturfarasetrið hlutu líka verðlaun.

Þungarokkshátíðin Eistnaflug í Neskaupstað hlaut í gær Eyrarrósina 2017, verðlaunin sem veitt eru árlega fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.

Forsetafrúin Eliza Reid, sem er verndari Eyrarrósarinnar, afhenti verðlaunin við athöfn í Verksmiðjunni á Hjalteyri, en starfsemin þar hlaut verðlaunin í fyrra og hefur myndast sú hefð að afhenda verð- launin hverju sinni í höfuðstöðvum verðlaunahafa síðasta árs.

Verðlaunin sem Eistnaflug hlýtur er fjárstyrkur; tvær milljónir króna, auk nýs verðlaunagrips sem hannaður er af Friðriki Steini Friðrikssyni vöruhönnuði.

Alþýðuhúsið á Siglufirði og Vesturfarasetrið á Hofsósi, sem einnig voru tilnefnd til verðlaunanna, hlutu hvort um sig 500 þúsund krónu peningaverðlaun. Nýr samningur um verðlaunin

Að Eyrarrósinni standa í sameiningu Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands og var þetta í þrettánda sinn sem verðlaunin voru veitt.

Við upphaf athafnarinnar í Verksmiðjunni undirrituðu Vigdís Jakobsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar, og Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, samninga um áframhaldandi samstarf um Eyrarrósina til ársins 2020.

 

 

Morgunblaðið 17. febrúar 2017.


 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30