A A A
  • 1981 - Brynhildur Elín Kristjánsdóttir
  • 1995 - Alexander Almar Finnbogason
  • 1996 - Margrét Unnur Borgarsdóttir
19.10.2015 - 15:59 | Hallgrímur Sveinsson

Er vaxtarbroddur Vestfjarða í dag í Mosdal í Arnarfirði?

Þorbjörn Pétursson, bóndi á Ósi við eldavélina í eldhúsinu á Ósi. Þar er allt hvítskúrað í hólf og gólf hjá kalli líkt og var hjá móður hans áður og fyrr. Og rafmagnsheimtaug komin að bæjarvegg!
Þorbjörn Pétursson, bóndi á Ósi við eldavélina í eldhúsinu á Ósi. Þar er allt hvítskúrað í hólf og gólf hjá kalli líkt og var hjá móður hans áður og fyrr. Og rafmagnsheimtaug komin að bæjarvegg!

Gamli oddvitinn í Auðkúluhreppi brá undir sig betri fætinum í gær og fór í inspektionsferð í sinn gamla hrepp. Enda ástæða til: Nú er allt á ferð og flugi í Mosdal. Þar virðist vera komið góðæri og opinberar framkvæmdir  eru nú þar í gangi í slíkum mæli að elstu menn standa á gati. Við getum tekið undir með Ragnari og sagt: Ma-ma-ma-ma! Hefst nú upptalningin á þessum ótrúlega miklu framkvæmdum ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í Mosdal í Auðkúluhreppi, fæðingarsveit Jóns Sigurðssonar.

Í sumar var lagður rafstrengur í dalinn sem flytur þangað rafmagn frá Mjólkárvirkjun. Má segja að það sé ekki seinna vænna eftir 57 ár frá því virkjunin var gangsett. Í sama skurð var lagður ljósleiðari.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31