A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
17.09.2015 - 15:19 | Hallgrímur Sveinsson

Er ekki rétt að hafa kontról á þessu?

Elís Kjaran í snjómokstri á Hrafnseyraheiði (Grímsheiði!) Hann hefði haft gaman af að spíka við þetta lið. Alla vega kvenmennina. Ljósm. H. S.
Elís Kjaran í snjómokstri á Hrafnseyraheiði (Grímsheiði!) Hann hefði haft gaman af að spíka við þetta lið. Alla vega kvenmennina. Ljósm. H. S.
« 1 af 2 »

Í framhaldi af frétt dagsins í gær um Náttúrulistasalinn Ísland, teljum við rétt að birta aftur frétt sem kom á Þingeyrarvefnum 15. marz 2015. Spyrja verður: Er ekki rétt að fræða hina erlendu ferðamenn um landsins gagn og nauðsynjar þegar þeir koma til okkar fullir tilhlökkunar? Eða eigum við bara að segja að þetta reddist allt?

 

_____________________

 

Fréttin 15. mars 2015

 

 

Við Bjössi hittum fjóra Japana í sjoppunni hjá henni Diddu í gær. 
Tvær myndarlegar konur og tvo menn. Þau voru á þessum fína fjallajeppa. „Are you going south?“ sögðum við að gamni okkar.  „Yes, yes,“ sagði foringinn lukkulegur með sig. „And you are going to drive over the Grímsheiði, or maybe the Kjarans road?“ „Yes, we are,“ sagði Japaninn og dró upp síma og sýndi okkur kort af þessum vegum. Þau ætluðu að aka samkvæmt kortinu. Velja aðra leiðina. Við urðum náttúrlega algjörlega klumsa því öllu gamni fylgir nefnilega nokkur alvara. Sögðum þeim að snúa sem skjótast til Ísafjarðar aftur, þaðan inn Djúp, til Hólmavíkur, Þröskulda og suður. (Það eru reyndar 28 metrar þar þegar þessi orð eru skrifuð).

   Jæja. Nú er það vitað mál að Íslendingar ætla sér að græða á ferðamönnum gífurlega monnínga. Græða, græða og græða. En á maður að trúa því að þetta blessaða fólk, sem er heimsækja okkur yfir háveturinn, fái engar leiðbeiningar um hvernig það á að haga sér? Keyra bara út í næsta skafl?  

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31