07.09.2015 - 13:39 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið
Einn góður úr Bolungarvík: - Reykjavíkurferð
Grímur hét maður, sem lengi var vinnumaður hjá Högna bónda á Ósi í Bolungarvík. Grímur fór sjaldan af bæ og lengstu ferðalög hans voru að öllum jafnaði frá Ósi og út á Malirnar í Bolungarvík. Í þá daga vissu allir í Bolungarvík hvar hver átti heima, rétt eins og flestir gera enn í dag.
Eitt sinn brá Grímur sér þó til höfuðborgarinnar, aldrei slíku vant. Hann taldi það ekki öllu flóknara en að skreppa niður á Malir en fór þó í sparifötin. Hann fór flugleiðis suður og þegar komið var á Reykjavíkurflugvöll tók hann sér leigubíl eins og aðrir.
Þegar bílstjórinn spurði hvert ætti að aka, þá svaraði Grímur:
Heim til Fríðu frænku.