Einn góður að vestan: - "Ætlið þið nú að láta stelpuna drepa mig!"
Jónína Jónsdóttir frá Gemlufalli var þekkt fyrir að láta aldrei standa upp á sig, hvorki í orði né á borði. Hún var fyrsta konan á Íslandi sem tók meirapróf sem kallað var. Það er próf sem veitir réttindi til að aka með fók og taka gjald fyrir.
Jónína sagði svo frá í svokölluðum Jónínusögum í Mannlífi og sögu fyrir vestan, 9. hefti:
„Ég sótti einu sinni fjóra presta til Ísafjarðar. Síðastur í bílinn var séra Jónmundur Halldórsson á Stað í Grunnavík. Ég tók hann í bílinn hjá syni hans, Halldóri, sem var yfirlögregluþjónn á Ísafirði. Þegar séra Jónmundur sér mig, segir hann vel hátt: "
"Ætlið þið nú að láta stelpuna drepa mig?"
"Nei, nei", segir Halldór. "Ég skal ábyrgjast hana."
Þegar við komum svo upp á Breiðadalsheiði og það sást inn í Kinnina, stoppa ég bílinn og segi:
"Var ég ekki sniðug, séra Jónmundur. Nú læt ég rúlla hérna fram af og þú sérð auðvitað um að ég fljóti með ykkur fjórum inn í Himnaríki!"
Mig minnir að hinum hafi þótt þetta dálítið frekjulegt af stelpunni, svona eftir á, gott ef allir urðu ekki hræddir.“