06.02.2013 - 20:07 | BIB
Dýrfirska Fjallkonan og -Reykvíska eldhúsið-
Boðið verður upp á sagógrjónagraut með rúsínum og rjómablandi við opnun.
Reynir Ingibjartsson les stuttan kafla úr endurminningum ömmu sinnar, Kristínar Dahlstedt frá Dröngum í Dýrafirði sem kom út hjá Vestfirska forlaginu í lok síðasta árs, Nanna Rögnvaldardóttir segir frá vöruúrvali og veitingum um aldamótin 1900, Auður Styrkársdóttir flytur erindi af hálfu Kvennasögusafns og Guðjón Friðriksson segir frá veitingamennsku Kristínar Dahlstedt og býður upp í gönguferð um slóðir hennar í Kvosinni.
Miðstöð munnlegrar sögu verður á staðnum og gefst fólk kostur á að segja frá matarvenjum eða öðru sem tengist viðfangsefninu.
Sýningarstjóri er Djúpmaðurinn Ólafur J. Engilbertsson.