19.03.2017 - 06:53 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason
Dýrfirðingar í Grindavíkurhöfn
Vefþrykkir Þingeyrarvefsins í umboði Vestfirska forlagsins fór í Grindavík á Gvendardeginum þann 16. mars sl. á menningarviðburð en þar í bæ hefurs staðið menningarvíka.
Byrjað var á að taka rúnt um bryggjurnar og hittum þá tvö sögufræga Dýrfirðinga. Það voru aflaskipin og hjónin úr Dýrafirði þau - Gísli Súrsson- og -Auður Vésteins- nýbúin að landa ágætum afla þennan daginn.
Tekið var smá spjall við áhöfnina á Auði Vésteins og sögðu þeir að útgerðarfélagið –Einhamar- sem gerir bátana út, væri með þriðja bátinn í smíðum. Þá var spurt um hvort nafn þess skips yrði líka sótt vestur. Skipstjórinn svaraði því skellihlæjandi að grínast væri með að það nafn yrði –Ingjaldsfíflið-
Húmirinn er í góðu lagi í Grindavík.