A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
24.09.2015 - 20:51 | Hallgrímur Sveinsson

Dýrfirðingar eru sorrý, sárir og svekktir

Vel flestir sem vettlingi geta valdið í Dýrafirði og áttu heimangengt, voru mættir þegar kveikt var á friðarkertum síðustu mínúturnar sem Landsbankinn hafði opið á Þingeyri, eftir því sem tilkynnt hefur verið.
Vel flestir sem vettlingi geta valdið í Dýrafirði og áttu heimangengt, voru mættir þegar kveikt var á friðarkertum síðustu mínúturnar sem Landsbankinn hafði opið á Þingeyri, eftir því sem tilkynnt hefur verið.
« 1 af 4 »

Sú andsamfélagslega aðgerð Banka allra landsmanna að loka útibúi bankans á Þingeyri hefur vakið hörð viðbrögð í Dýrafirði.

Í dag komu flestir sem vettlingi geta valdið og áttu heimangegnt í firðinum saman við Landsbankann á Þingeyri. Var þar höfð stutt sameiginleg stund  síðustu mínútur Landsbankans á staðnum. Kveikt var á kertum. Jónína Símonardóttir kennari hélt stutta tölu og sagði meðal annars að nú væru Dýrfirðingar sorrý, sárir og svekktir. Einn fundarmanna sagði að þetta væri punkturinn yfir i-ið. Tveggja mínútna þögn var svo í lokin.

   Mikill þungi er í fólki vegna þessarar aðgerðar Landsbankans. Hingað og ekki lengra segja viðskipamenn og eigendur Landsbankans í Dýrafirði. Nánar verður fjallað um þetta mál síðar hér á Þingeyrarvefnum.

H. S. tók meðf. ljósmyndir á samkomunni. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30