18.01.2015 - 11:53 | Hallgrímur Sveinsson og Bjarni Georg Einarsson
Dýrfirðingafélagið og Kristján Ottósson
Árið 2011 varð Dýrfirðingafélagið 65 ára. Í tilefni þeirra tímamóta gaf það út afmælisblað. Ritstjóri þess og forgöngumaður var vinur okkar, Kristján Ottósson frá Svalvogum. Kristján sá um allan kostnað við gerð og útgáfu blaðsins.
Í blaðinu eru margar skemmtilegar undirstöðugreinar úr mannlífi og sögu í Dýrafirði. Forsvarsmenn ýmissa félaga í firðinum láta þar ljós sitt skína og fara þar sumir á kostum.
Margir hafa auðvitað alls ekki séð þetta ágæta afmælisblað. Okkur finnst því upplagt að biðja Þingeyrarvefinn að birta nokkrar greinar úr afmælisblaðinu öllum til gagns og gleði í góðri sátt við Dýrfirðingafélagið og Kristján ritstjóra. Munu þær birtast öðru hvoru næstu vikur.
Upp með Dýrafjörð og Vestfirði almennt!
Með baráttukveðjum
Hallgrímur Sveinsson
Bjarni Georg Einarsson