21.12.2017 - 20:42 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vegagerðin,Vestfirska forlagið
DÝRAFJARÐARGÖNG: - GÓÐUR GANGUR FYRIR JÓLAFRÍ
Í síðustu viku voru grafnir 70,8 m í Dýrafjarðargöngum. Heildarlengd ganganna í lok viku 50 var 812,0 m sem er 15,3% af heildarlengd ganganna. Grafið var í gegnum þrennskonar efni seinni part vikunnar.
Í vinstri hlið ganganna er berggangur sem hefur fylgt gangamönnum í um 40 m. Neðst í sniðinu er karginn á leiðinni upp og svo þar fyrir ofan er basaltið sem grafið hefur verið í síðustu vikurnar. Sem fyrr þá dropar vatn úr loftinu og veggjum.
Efni úr göngunum er keyrt í vegfyllingu sem er komin um 500 m frá enda fyrirhugaðs vegskála. Enn á þó eftir að hækka veginn töluvert.
Gangamenn Suðurverks og Metrostav eru farnir í jólafrí og koma aftur til starfa þann 3. janúar 2018. Flestir starfsmenn Metrostav eru frá Tékklandi.