A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
12.07.2017 - 21:53 | Vestfirska forlagið,Forn­minja­fé­lag Súg­anda­fjarðar,Eyþór Eðvarðsson,Björn Ingi Bjarnason

Bygging á verbúð í Staðardal í Súgandafirði

Verbúðin í Staðardal í Súgandafirði. Ljósm.: Eyþór Eðvarðsson.
Verbúðin í Staðardal í Súgandafirði. Ljósm.: Eyþór Eðvarðsson.

Fornminjafélag Súgandafjarðar stóð að byggingunni með aðstoð fjölmargra.

Verbúðin er reist til að minnast þess tíma er róið var á sjóinn. Fyrirmyndirnar eru verbúðir á Vestfjörðum og teikningin er eftir Valdimar Össurarson.

Við hliðina a verbúðinni voru þrír staðir sem róið var frá þ.e. Árósinn, Keravíkin og Stöðin.

Verbúðin er öllum opin og öllum velkomið að kíkja inn og lifa sig inn í þúsund ára sögu útræðis á þessum fallega stað í Súgandafirði. Bátinn fengum við frá bátasafninu á Reykhólum og er hann um 80 ára gamall.

Framundan er að mála bátinn og finna hluti sem eiga heima í og við verbúðina og endurspegla lífið fyrir 500-1000 árum síðan.

Af Facebook-síðu Eyþórs Eðvarðssonar.

 

 

 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30