25.06.2015 - 10:15 | skutull.is,BIB
Bundið slitlag komið í Kerlinga- og Kjálkafjörð
Búið er að leggja bundið slitlag á nýjan veg um Kerlingafjörð og Kjálkafjörð í Múlasveit í Barðastrandarsýslu, þar sem unnið hefur verið að vegabótum og þverun tveggja fjarða síðustu tvö árin. Suðurverk hefur nú lokið við að leggja bundið slitlag á veginn og er þá búið að tengja saman malbikaða kaflann frá Vatnsfirði og suður yfir Klettháls og út í Skálanes við Kollafjörð. Þessum áfanga geta allir Vestfirðingar fagnað. Aðeins einn áfangi er eftir á leiðinni á milli Bjarkalundar og Patreksfjarðar. Vegurinn fyrir Djúpafjörð og Gufufjörð fyrir Hallsteinsnes og yfir Teigskóg inn í Þorskafjörð. Þetta er hinn umdeildi kafli sem enn er í "ferli" í kerfinu.
Nú er hægt að aka á bundnu slitlagi frá Bíldudal yfir Hálfdán í Tálknafjörð, yfir Lágadal í Patreksfjörð, yfir Kleifaheiði um Barðaströnd úr Vatnsfirði og áfram nýja kaflann að Klettshálsi yfir í Kollafjörð og út í Skálanes. Þá tekur við eini malarkaflinn á leiðinni suður í Bjarkalund, 25 kílómetrar yfir Hjallaháls og Ódrjúgsháls í Þorskafjörðinn. Vonandi verður hægt að fara í þá framkvæmd á næstu misserum og klára áfangann.
Þá verður gott þegar Dýrafjarðargöng og nýr vegur um Dynjandisheiði verða komin eftir nokkur ár og hægt að aka vesturleiðina frá Ísafirði til Reykjavíkur á bundnu slitlagi á vegi sem verður um 380 kílómetrar - og frá Þingeyri til Reykjavíkur um 335 kílómetrar.

Nýi vegurinn er um 16 kílómetrar að lengd, frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði, og liggur meðal annars yfir brýr á Kjálkafirði og Mjóafirði. Vegurinn styttist um 8 kílómetra á þessari leið, auk þess sem hann er færður frá snjóþungum hlíðum og í stað gömlu malarveganna er kominn nýr og fullkominn þjóðvegur. Í frétt á mbl.is segir að Suðurverk hafi fengið verkið eftir útboð á árinu 2012 og var tilboðsfjárhæð um 2,5 milljarðar króna. Er þetta eitt stærsta vegagerðarverkefni hér á landi síðustu árin, fyrir utan jarðgangagerð.