Brátt renna öll vötn til Dýrafjarðar
Í viku 35 voru grafnir 55,8 m í göngunum og er því lengd gangnanna í lok vikunnar orðin 3.453,6 m, eða 65,1 % af áætlaðri heildarlengd. Nú vantar aðeins 231,5 m í hábunguna í göngunum en þegar henni er náð munu öll vötn renna til Dýrafjarðar.
Byrjað var á útskoti H í vikunni en það er tæknirými og snúningsútskot. Í lok vikunnar var eftir ein færa áður en komið er aftur í venjulegt snið. Að auki var fyrsta færa sprengd í öðru hliðarrýminu í útskoti H. Kubbabergið sem grafið hefur verið í undanfarið er komið upp fyrir þekju og er nú grafið í heillegu basalti.
Efnið úr göngunum var keyrt á haugsvæði til síðari nota. Unnið var við mölun á efni alla vikuna en efnið verður notað meðfram lögnum í göngunum.
Fyllt var að syðri sökklinum í Mjólká. Syðri sökkull nýju brúarinnar yfir Hófsá var steyptur á mánudeginum og klárað að slá upp fyrir nyrðri sökklinum og var hann tilbúinn undir steypu í lok vikunnar.
Í Dýrafirði var unnið við skeringu og vegfyllingu ásamt vinnu við að koma rafmagni og ljósleiðara að tengipunkti við munna.