07.09.2015 - 11:47 | Safnahúsið á Ísafirði,BIB
Bókasafnsdagurinn 2015
Þriðjudaginn 8. september 2015 höldum við upp á bókasafnsdaginn, líkt og önnur íslensk bókasöfn. Það er Upplýsing, félag bókasafns- og upplýsingafræða, sem gengst fyrir þessum viðburði í samvinnu við bókasöfn landsins. Hjá okkur verður ýmislegt um að vera.
Dagskrá:
Kl. 17:00: Jón Páll Halldórsson segir frá væntanlegri bók sinni, um ábúendur og býlí í innanverðu Ísafjarðardjúpi.
Allan daginn:
- Allir sem taka bækur fá 1 fría DVD kvikmynd með.
- Veggspjald og sýning á bókum: Uppáhalds íslensku kvenrithöfundarnir að mati bókavarða.
- „Leynibækur“ eftir kvenkyns höfunda – þorirðu?
- Bókamerki dagsins.
Opið kl 13-18. Heitt á könnunni.
Verið velkomin, hlökkum til að sjá ykkur!