23.02.2018 - 15:16 | mbl.is
Between Mountains ein fimm hljómsveita í forvali um Björtustu vonina
Nú um mundir fer fram netkosning um björtustu vonina innan íslenskrar samtímatónlistar í samnefndum flokki verðlauna Íslensku tónlistarverðlaunanna 2018. Rás 2 hefur tilnefnt í þeim flokki fimm flytjendur en þeir eru: Between Mountains, Birgir, Birnir, GDRN og Hatari. Allt eru þetta efnilegir tónlistarmenn sem standa framarlega í tónlistarsenunni í dag.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 14. mars. Netkosning stendur nú yfir milli þessa efnilega tónlistarfólks og má nálgast kosninguna hér.
Íslensku tónlistarverðlaunin verða veitt í Hörpu miðvikudaginn 14. mars. Netkosning stendur nú yfir milli þessa efnilega tónlistarfólks og má nálgast kosninguna hér.