Basil fursti gleður bændurna
Ævintýrin um Basil fursta komu fyrst út á
Íslandi 1939-1941 í þremur þykkum bókum. Síðan komu þau út í fjölmörgum heftum,
en hvert þeirra er sjálfstæð saga. Höfundur Basil fursta er Daninn Niels Gustav
Meyn (1891-1957). Útgefandi var Sögusafn heimilanna en þeirri útgáfu stýrði Árni
Ólafsson. Páll Sveinsson, kennari í Hafnarfirði, þýddi bækurnar.
Vestfirska forlagið á Brekku í Dýrafirði, undir
forystu Hallgríms Sveinssonar, hefur nú hafið endurútgaáfu Basil Fursta og eru
komin út sex hefti. Gríðarleg ánægja er þessa úgáfu bæði meðal þeirra sem þekkja
Basil fursta frá fyrri tíð og eins nýir lesendur. Meðal aðdáenda er Bjarkar
Snorrason fyrrverandi bóndi að Tóftum í Stokkseyrarhreppi hinum forna og nú
veðurbóndi að Brattsholti í sömu sveit. Hann bíður hvers heftis af Basil fursta
og er á myndinni með nýjasta heftið sem var að koma
út.
Bændablaðið greinir frá fimmtudaginn 18. okt. 2012.
.