A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
27.10.2016 - 17:04 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Bækurnar að vestan: - Súgfirðingur fer út í heim

Forsíða (kápa) bókarinnar.
Forsíða (kápa) bókarinnar.

Súgfirðingur fer út í heim

Eftir Guðbjart Gunnarsson

Sem unglingur í Súgandafirði átti Guðbjartur Gunnarsson sér þann draum að komast að því, hvað væri handan þessara háu fjalla, sem skyggðu á sólina marga, langa mánuði á ári. Hann fór suður, tók kennarapróf, stundaði kennslu og tókst að fara tvisvar til náms á Bretlandseyjum og þrisvar til Bandaríkjanna, þar sem hann lauk meistaraprófi í fjölmiðlafræðum. Gerðist síðan einn af fyrstu starfsmönnum Sjónvarpsins fyrir 50 árum, og hafði umsjón með gerð fræðsluefnis.

Guðbjartur setti saman fyrstu áfangalýsingar í fjölmiðlafræðum fyrir framhaldsskóla og hóf fyrstu skrefin í kennslu samkvæmt þeim. Samdi kennsluefni í íslensku handa enskumælandi nemendum í Kanada og Bandaríkjunum á vegum Íslendingafélagsins í Kanada. Og svona má lengi telja. Guðbjartur er nú búsettur á Filippseyjum. 

 

 

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30