A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
27.10.2016 - 16:54 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Bækurnar að vestan: - Átthagar

Forsíða (kápa)  bókarinnar.
Forsíða (kápa) bókarinnar.

Átthagar

Ísfirðingar margra landa segja frá

Eftir Herdísi Hübner   
                                                                

Í þessari bók er lesendum boðið í heimsreisu með viðkomu  á Jamaica, Sri Lanka, El Salvador,  Rússlandi, Þýskalandi, Póllandi, Ungverjalandi, Tælandi og Ástralíu. Jafnframt er lagt í tímaferðalag nokkra áratugi aftur í tímann því hér birtast sögur frá uppvaxtar- og æskuárum níu kvenna á ýmsum aldri í þessum fjarlægu löndum. Konurnar eiga það sameiginlegt að hafa búið á Ísafirði í fjölda ára. Að öðru leyti eru þær ólíkar, hafa ólíkan bakgrunn og hver og ein er fulltrúi sjálfrar sín og einskis annars. Á Ísafirði hafa þær unnið margvísleg störf og allar hafa þær lagt mikið af mörkum til lífsins í bænum, auðgað það og eflt með ýmsu móti og eru sannkallaðir máttarstólpar samfélagsins. Þessi bók er afar gott innlegg í umræðu dagsins.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30