27.11.2017 - 17:43 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vegagerðin,Vestfirska forlagið
BÚIÐ AÐ GRAFA 11,1 PRÓSENT AF DÝRAFJARÐARGÖNGUNUM
Í síðustu viku voru grafnir 60,6 m í Dýrafjarðargöngum. Heildarlengd ganganna í lok viku 47 var 589,9 m sem er 11,1% af heildarlengd ganganna. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni var farið í gegnum nokkuð blautt svæði í vikunni en að öðru leyti voru göngin nokkuð þurr og bergið var að springa þokkalega.
Fyrri part vikunnar var efni keyrt í vegfyllingu og nýi vegurinn tengdur við eldri þjóðveg. Eftir það var öllu efni keyrt á haugsvæði.