A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
11.02.2017 - 11:26 | Þjóðleikhúsið,Vestfirska forlagið,Komedia,Björn Ingi Bjarnason

Aukaaukasýningar á Gísla á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu

Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.
Elfar Logi Hannesson sem Gísli á Uppsölum.

Sýningar á Gísla á Uppsölum í Þjóðleikhúsinu hafa gengið fyrir fullu húsi frá fyrstu sýningu. Þremur aukasýningum var bætt við og er að seljast upp á tvær þær síðustu núna á miðvikudag og fimmtudag.

Því hefur verið bætt við aukaaukasýningum á helginni. Sýnt verður laugardag (11.feb.) og sunnudag (12. feb.) kl.17.00 báða dagana. Miðasala er þegar komin á fullt og fer fram á netinu á afþreyingarsölusíðunni www.tix.is

Einnig er hægt að panta miða í miðasölusíma Þjóðleikhússins 551 1200.

Að þeim sýningum loknum hefur Gísli verið sýndur alls 12 sinnum í Þjóðleikhúsinu en upphaflega stóð aðeins til að sýningarnar yrðu 2. Svona er nú lífið kómískt.

Kómedíuleikhúsið þakkar kærlega viðtökurnar á Gísla á Uppsölum. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30