05.01.2017 - 07:57 | Vestfirska forlagið,Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri
Árskort í Landbúnaðarsafnið árið 2017
Við ætlum að gera tilraun með árskort í Landbúnaðarsafnið fyrir árið 2017 - en þó með sérstöku sniði:
Árskortið verður á formi lítillar bókar, Konur breyttu búháttum, sagan um Mjólkurskólann á Hvanneyri og á Hvítárvöllum og ungu stúlkurnar sem með skólanum eignuðust leið til náms og þroska. Margar þeirra tóku síðan þátt í nýsköpun mjólkurvinnslu og afurðasölunnar í byrjun síðustu aldar.
Árskortið er því ekki aðeins aðgangslykill að Landbúnaðarsafni heldur um leið fræðandi fyrir gesti safnsins. Kjörin eru þessi:
1. Kortið kostar 3.000 kr. auk sendingarkostnaðar
2. Kortið verður skráð á nafn eiganda þess og það gefið út í Landbúnaðarsafni á Hvanneyr
3. Kortið, þ.e. áðurnefnd bók, hefur þennan formála á forsíðu en hann lýsir notkun þess:
Á R S K O R T
Gegn framvísun þessarar bókar hefur eigandi hennnar gjaldfrjálsan aðgang að Landbúnaðarsafni Íslands í Halldórsfjósi á Hvanneyri með einum fullorðnum gesti svo oft sem hann kýs á árinu 2017.
Afgreiðslumaður safnsins í Ullarselinu þarf aðeins að kvitta fyrir komuna með dagsetningu heimsóknar á auðu síðuna aftast í bókinni.
Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri
Landbúnaðarsafnið á Hvanneyri