31.10.2019 - 11:26 |
Árleg hundahreinsun á Ísafirði
Árleg hundahreinsun verður í áhaldahúsinu á Ísafirði frá kl. 16:00-18:00 mánudaginn 4. nóvember og þriðjudaginn 5. nóvember.
Engrar tímapöntunar er þörf heldur mæta eigendur bara með hunda sína og fá þá hreinsaða. Hundahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi til Ísafjarðarbæjar og er skorað á þá sem eiga eftir að ganga frá skráningu að gera það hið fyrsta. Hægt er að skrá hunda í gegnum rafrænan Ísafjarðarbæ eða með eyðublaði.