28.02.2016 - 12:11 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið
Alveg gomma af nýjum fréttum úr Dýrafirði
- Flensan hefur verið að stinga sér niður hér hjá ungum sem öldnum. Þá er bara ekkert að gera annað en fara eftir læknisdómum alþýðunnar og margra lækna: Taka það rólega og fara vel með sig!
- Stjáni í Miðbæ fór á Ísafjörð í vikunni. Hann fór í Bónus. Eða það höldum við. Svo keypti hann brauð fyrir blessaðar kindurnar sínar hjá henni Rut.
- Það er mikið um að vera í föndrinu í kjallaranum á Hótel Tjörn. Það er tvisvar í viku. Undir stjórn þeirra frúnna Ástu í Hólum og Möttu hans Hafsteins. Skipt í þrjár deildir: Bókband, spil og prjón. Kaffið og meðlætið er alveg svakalega gott hjá þeim. Svo borgar maður 400 kall í krúsina. Glæsilegt eins og þær segja!
- Úr blokkinni er það helst að frétta, að Mangi Sig. mokaði altanið hjá sér í fyrradag. Það er ekki nóg að moka bara af götum og gangstéttum og stundum af sveitatroðningum! En það gerir Mangi með miklum sóma fyrir blessað fólkið og bílana þess. Bergur á Felli og Sigþór úr Fellasókn eru löngu búnir að moka svalirnar hjá sér.
- Heyrst hefur að St. Grímur ætli að fara á Ísafjörð í næstu viku á kappakstrinum (Formúla 1 þið munið!). Það er bara verst að það er svo erfitt að fá menn í dekkjagengið þessa dagana. Hann þarf nefnilega helst að skipta um á Dýrafjarðarbrú. Svo sagði Hemmi heitinn Gunn. Ekki laug hann! Ma-ma-ma-ma!
- Í fréttum er þetta helst úr Mýrahreppi: Þeir á Mýrum bera út og bera út í Fellið og ekkert dugar. Tófan lætur ekki sjá sig. Það er sama þó þeir bjóði upp á nýjan þorsk og sjófugl. En hvar er öll tófan?
Tunglið, tunglið, taktu mig
(Framhald)
Þar er siglt á silfurbát
með seglum þöndum,
rauðagull í rá og böndum,
rennir hann beint að ströndum,
rennir hann beint að björtum sólarströndum.
"Þar situr hún móðir mín"
í möttlinum græna,
hún er að spinna híalín
í hempu fyrir börnin sín.
"Og seinna, þegar sólin skín",
sendir hún þeim gullin fín,
mánasilfur og messuvín,
mörgu er úr að velja.
Hún á svo margt, sem enginn kann að telja.
(Meira seinna)
Theodóra Thoroddsen