20.12.2013 - 06:59 | Björn Ingi Bjarnason
Allskonar sögur - komnar út hjá Vestfirska forlaginu
Hjá Vestfirska forlaginu á Þingeyri er komin út bókin Allskonar sögur eftir Jón Hjartarson á SElfossi, Strandamann og fyrrum fræðslustjóra á Suðurlandi og afabarn hans, Ásu Ólafsdóttur. Bókin er ríkulega myndskreytt af Sunnlendingnum Ómari Smára Kristinssyni í Garðaríki á Ísafirði.
Allskonar sögur eru 14 talsins. Ein þeirra, Urtan og ljósmóðirin, segir frá því þegar langamma Jóns Hjartarsonar, Sigríður Jónsdóttir ljósmóðir frá Stórafjarðarhorni, lenti í þeirri lífsreynslu að hjálpa urtu að kæpa. Er ekki vitað til að slíkt hafi komið fyrir fyrr né síðar hér á landi.
Allskonar sögur er bók fyrir alla aldurshópa, sem hafa gaman af ævintýrum og njóta þeirra í samvistum við landið, sögurnar og eigin ímyndunarafl.