A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
12.02.2016 - 07:42 | Hallgrímur Sveinsson

Álftamýrarferð: - Allt undir kontról á þeim fornfræga stað!

Húsið Á álftamýri er nú sveitarprýði ekki síður en á dögum Gísla.
Húsið Á álftamýri er nú sveitarprýði ekki síður en á dögum Gísla.
« 1 af 2 »

Farið var á Álftamýri fyrir nokkrum dögum.

Halldór björgunarsveitamaður Gíslason var ökumaður á sínum góða jeppa með þau Guðrúnu á Eyri og Þorbjörn bónda á Ósi innan borðs.  Þurftu þau að fara fjöruna frá Tjaldanesi út fyrir Hlaðsbót. Stórt snóflóð lokar veginum í svokölluðu Innra-Dragagili á innanverðum Baulhúsaskriðum. Auk þess er vegurinn lokaður við Dysjargil utan Auðkúlu.

Allt var undir kontról á Álftamýri þar sem Gísli G. Ásgeirsson gerði garðinn frægan áður fyrr ásamt fleirum.  Þau hjón Bryndís Baldursdóttir, áður bankafulltrúi í Landsbankanum á Ísafirði og Gunnar Steinþórsson, rafvirkjameistari í Straumi þar í bæ, bróðir Guðrúnar, hafa endurbyggt staðarins hús, en það reisti Gísli 1905-1906. Er það nú sveitarprýði ekki síður en var á dögum Gísla. Gunnar og Bryndís búa nú í Mosfellssveit, en bjuggu áður í áratugi á Ísafirði.

   Ekki sáu ferðalangarnir margt kvikt á sinni leið, nema mink sem svamlaði í föruborðinu og fugla. Eiður að nokkur sauðkind sæist og fóu þau þó alla leið út að Fossdalsá utan Álftamýrar.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30