Álftamýrarferð: - Allt undir kontról á þeim fornfræga stað!
Farið var á Álftamýri fyrir nokkrum dögum.
Halldór björgunarsveitamaður Gíslason var ökumaður á sínum góða jeppa með þau Guðrúnu á Eyri og Þorbjörn bónda á Ósi innan borðs. Þurftu þau að fara fjöruna frá Tjaldanesi út fyrir Hlaðsbót. Stórt snóflóð lokar veginum í svokölluðu Innra-Dragagili á innanverðum Baulhúsaskriðum. Auk þess er vegurinn lokaður við Dysjargil utan Auðkúlu.
Allt var undir kontról á Álftamýri þar sem Gísli G. Ásgeirsson gerði garðinn frægan áður fyrr ásamt fleirum. Þau hjón Bryndís Baldursdóttir, áður bankafulltrúi í Landsbankanum á Ísafirði og Gunnar Steinþórsson, rafvirkjameistari í Straumi þar í bæ, bróðir Guðrúnar, hafa endurbyggt staðarins hús, en það reisti Gísli 1905-1906. Er það nú sveitarprýði ekki síður en var á dögum Gísla. Gunnar og Bryndís búa nú í Mosfellssveit, en bjuggu áður í áratugi á Ísafirði.
Ekki sáu ferðalangarnir margt kvikt á sinni leið, nema mink sem svamlaði í föruborðinu og fugla. Eiður að nokkur sauðkind sæist og fóu þau þó alla leið út að Fossdalsá utan Álftamýrar.