A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
07.01.2009 - 02:01 | bb.is

Álfar gengu í hús á Þingeyri

Fríða og dýrið voru á meðal púkanna og álfanna sem gengu í hús á Þingeyri á þrettándanum. Mynd: Nanna Björk Bárðardóttir.
Fríða og dýrið voru á meðal púkanna og álfanna sem gengu í hús á Þingeyri á þrettándanum. Mynd: Nanna Björk Bárðardóttir.
Fríða og dýrið voru á meðal púkanna og álfanna sem gengu í hús á Þingeyri í gærkvöldi, sungu og þáðu góðgæti. Um er að ræða skemmtilega hefð sem hefur verið við lýði á Þingeyri í mörg ár en þá ganga grímuklædd börn í hús og þiggja góðgerðir. Þessi siður á Þingeyri mun allt að því einstæður á þrettándanum en hann hefur þróast þannig síðustu árin að álfarnir eru farnir að syngja fyrir mannfólkið að launum fyrir sælgæti. Í öðrum byggðum hér vestra er almennast að þessi háttur sé hafður á öskudaginn.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30