A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
10.02.2017 - 15:26 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Akademían á Þingeyri fordæmir Brennivínsfrumvarpið

Akademían á Þingeyri að störfum. Ljósm. Kristján Ottósson.
Akademían á Þingeyri að störfum. Ljósm. Kristján Ottósson.

Hinn þekkti morgunklúbbur eða Akademía í sundlauginni á Þingeyri samþykkti í morgun eftirfarandi ályktun með eiginlega öllum greiddum atkvæðum:

 

„Akademían á sundlaugarbakkanum á Þingeyri fordæmir Brennivínsfrumvarpið sem nú liggur fyrir Alþingi. Þeir þingmenn sem að því standa, ættu að snúa sér að þarfari málum fyrir kjósendur sína. Það er grátlegt þegar dreifbýlisþingmenn telja þetta forgangsmál fyrir landsbyggðina.

Allir vita að það er auðveldara fyrir börn og unglinga að nálgast eiturlyf en að panta pizzu. Á það sama að gilda um áfengið?Akademían tekur undir með Birgi Jakobssyni landlækni, sem segir:    „Það er talað fyrir því að gera mjög áhættusama og kostnaðarsama tilraun með sölu á áfengi í matvöruverslunum. Þetta er stórhættulegt. Áhrif þessarar tilraunar verður ekki hægt að draga til baka.“

   "Niður í skúffu með Brennivínsfrumvarpið segjum við! Það getur vel verið að sú skoðun okkar sé afturhald. Það verður þá bara að hafa það og hana nú!“  



« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30