22.09.2011 - 11:00 | JÓH
Afrakstur Díónýsíu sýndur á morgun
Díónýsía, hópur íslenskra og erlendra listamanna sem hefur dvalið á Þingeyri síðastliðna viku, mun sína afrakstur vinnu sinnar á morgun. Hópurinn samanstendur af dansara, hönnuði og myndlistarfólki og er óhætt að segja að vinna þeirra hafi vakið athygli á eyrinni. Meðal verkefna hópsins voru að teikna andlitsmyndir af Dýrfirðingum og safna karlmannsnærbuxum, svo fátt eitt sé nefnt, en þau höfðu mikinn áhuga á að kynnast þekkingu og sjónarhorni heimamanna á líf og list. Dagskrá morgundagsins er sem hér segir og er ókeypis á alla viðburði.
14:00 Hjólreiðakeppni í kringum Sandafell. Rásmark við Simbahöll.
15:00-17:00: Sýning opnar í Simbahöllinni. Heitt á könnunni og kökur í boði
17:00 Uppákoma í Samkomuhúsinu
-Lokahóf í Simbahöllinni-
20:00 Húsið opnar. Léttar veitingar í boði meðan birgðir endast
21:00 Simbamót í Sjómann. Skráning á staðnum, frítt skot fyrir þáttakendur.
22:00 Lifandi tónlist og stuð fram á nótt...