Af hverju þarf forstjóri Byggðastofnunar ofurjeppa?
Nýverið kom fram í fréttum að forstjóri Byggðastofnunar hefði fengið nýjan ofurjeppa til afnota fyrir sig og sína. Tíu milljónir og þrjú hundruð þúsund takk. Og nokkrar milljónir í reksturskostnað. Verði blessuðum manninum að góðu. En eftir stendur spurningin. Er þörf á þessu? Við segjum nei. Hann hefur ekkert með slíkt verkfæri að gera á kostnað skattgreiðenda landsins. Nær væri að verja stórum hlut af þessum jeppafjármununum til raunhæfra byggðaaðgerða. Til dæmis að leggja féð í veginn norður í Árneshrepp. Ekki veitir nú af.
Hvernig á þá forstjórinn að ferðast um byggðirnar sem eru að hruni komnar?Hann á einfaldlega að nota leigubíla. Hringja á bíl og svo kemur hann eins og skot! Eða til dæmis að taka rútuna eða strætisbílinn þar sem slík farartæki ganga. Benda má til dæmis á rútuna milli Ísafjarðar og Hólmavíkur. Með slíkum vendingum væri hægt að spara stórfé.
Það höfum við reiknað út og viljum í fullri einlægni leggja þá útreikninga hér á borðið:
12,3 milljónir + reksturskostnaður áætlaður 2,7 milljónir = Alls 15 milljónir.
Selja gamla bílinn 5 milljónir. Samtals 20 milljónir.
Hægt er að fá góðan bílaleigubíl fyrir 150 – 200 þúsund á mánuði í ársleigu. Eða jafnvel minna. Og allir ánægðir.
Við spyrjum: Er ekki nóg komið af þessari jeppadellu opinberra starfsmanna?