16.05.2016 - 14:58 | Vestfirska forlagið,Verkalýðsfélag Vestfirðinga
Aðalfundur Verk Vest 18. maí 2016 kl.18.00 á Hótel Ísafirði
Aðalfundur Verkalýðsfélags Vestfirðinga verður haldinn miðvikudaginn 18. maí 2016 kl.18.00 á Hótel Ísafirði.
Boðið verður upp á léttan málsverð í lokinni hefðbundinni dagskrá.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Kynntur ársreikningur fyrir starfsárið 2015
- Tillögur um reglugerðabreytingar:
- a) Sjúkrasjóðs
- Ákvörðun félagsgjalds og hlutfall í vinnudeilusjóð
- Lögð fram tillaga um laun til stjórnar og nefnda
- Kosning siðanefndar skv. 28 gr. Starfs- og siðareglna félagins.
- Önnur mál
Allir félagsmenn eiga jafnan atkvæðis- málfrelsis- og tillögurétt á aðalfundi og eru hvattir til að mæta og nýta sér þann rétt.
Áríðandi er að staðfesta þátttöku við skrifstofu félagsins á Ísafirði í síðasta lagi þriðjudaginn 17. maí 2016.
Stjórn Verkalýðsfélags Vestfirðinga