A A A
  • 1920 - Jón Þ Sigurðsson
  • 1940 - Edda Arnholtz
  • 1992 - Ólöf Guðbjörg Jónasdóttir
  • 2006 - Jóhann Króknes Torfason
  • 2006 - Sigríður Króknes Torfadóttir
17.12.2014 - 07:02 | Vestfirska forlagið,BIB

Að hugsa mál til enda

Sighvatur Björgvinsson f.v. alþingsmaður og ráðherra.
Sighvatur Björgvinsson f.v. alþingsmaður og ráðherra.
« 1 af 2 »

Þegar Vestfirðingurinn og kratinn Sighvatur Björgvinsson var heilbrigðisráðherra fóru hann og Ólafur Ólafsson þáverandi landlæknir eitt sinn saman á Evrópuþing Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar. Áfengisvarnir voru þar efst á baugi og fluttu margir þingfulltrúar áhrifamiklar ræður um nauðsyn þess að berjast gegn Bakkusi. Eftir eina slíka eldheita ræðu hvíslaði Ólafur að Sighvati: Þegar við komum heim leggjum við til að sett verði varnaðarorð á áfengisflöskur.
Sighvatur varð hugsi en sagði svo:Heldurðu að það væri rétt, Ólafur minn? Þú manst nú hvernig fór þegar þú lést setja varnaðarorðin á sígarettupakkana. Þurftirðu þá ekki að hætta að reykja?

Úr bókinni Vestfirskir stjórnmálamenn í blíðu og stríðu

Vestfirska forlagið 20 ára.

http://vestfirska.is/index.php/is/

« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31