A A A
08.08.2017 - 21:10 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Á vettvangi dagsins: - Þingeyrarakademían er orðin heimsfræg eða þannig!

Þingeyrarakademían. Ljósm.: Kristján Ottósson.
Þingeyrarakademían. Ljósm.: Kristján Ottósson.

Eins og margir vita er Þingeyrarakademían orðin heimsfræg í Dýrafirð. Og nú er svo komið að erlent ferðafólk sem kemur til Þingeyrar spyr eftir þessari blessuðu akademíu. Að maður tali nú ekki um íslenska ferðafólkið.

   Í morgun, þriðjudaginn 8. ágúst 2017,  kom til dæmis hópur Þjóðverja í sundlaugina á Þingeyri. Eitt af því fyrsta sem þeir spurðu um var Þingeyrarakademían. Í ljós kom að þeir höfðu séð fréttir og áskoranir frá henni í heimspressunni og hina ágætu mynd eftir Kristján Ottósson, forseta. Þannig að það er eins gott að Þingeyrarakademían reyni að standa undir nafni!




« Apríl »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30